Húsaleikur, stór og lítill

Með september 20, 2018
Námsmarkmið

Kynna nemendum fyrir stór og lítill (stærri en og minni en).

Áhöld

Leikhringir, stór og lítill hlutur af sömu tegund, t.d. bíll, dúkka, bolti.

Undirbúningur

Stórum leikhringjum dreift um svæðið og myndir af nemendum í hópnum settar inn í hringina.

Framkvæmd

LESTIN: Hreyfingar sem hæfa námsþættinum eru til dæmis að klappa samstöfur í heitinu á þeim hlut sem stoppa á við næst.

FRJÓSA:

FYRIRMÆLI OG FARA AÐ HRING: Dæmi um fyrirmæli sem hæfa markmiðum leiksins: „Hvar er bíllinn?“

KENNSLA: Hér er við hæfi að tala um stóran bíl og lítinn bíl og nota hugtökin stærri en og minni en. „Þessi bíll er stærri en þessi bíll!“ Með unga nemendur stöldrum við ekki lengi við hvern hring.

Leikurinn er endurtekinn.

Myndir