Skip to main content

Grunnnámskeið fyrir skóla!

Leikur að læra býður upp á grunnnámskeið fyrir kennara og starfsfólk í leikskólum sem haldið er í skólanum.

Á námskeiðinu er farið í gegnum grunnhugmyndir Leikur að læra um það hvernig hægt er að samþætta leiki og hreyfingu við bóklegt nám barna á einfaldan hátt. Það er eðli barna að leika og  hreyfa sig  og mikilvægt að nýta sér það markviss í námi ungra barna. Námskeiðið er einstaklega hagnýtt og auðvelt að nýta sér hugmyndir strax að námskeiði loknu. Námskeiðið er sérsniðið að hverjum skóla með það að markmiði að finna leiðir til að nýta þær aðstæður sem eru í boði á hverjum stað.

Námskeiðið er hugsað fyrir allt starfsfólk sem vinnur með börnum.

Lengd: 3,5 klst.

Verð fyrir námskeið kr. 120.000.-

Verð fyrir námskeið og ársáskrift af heimasíðu kr. 155.000.-

 

Grunnnámskeið fyrir einstaklinga!

Reglulega eru haldin Leikur að læra námskeið fyrir kennara og starfsfólk leikskóla sem vilja kynna sér aðferðafræði Leikur að læra. Starfsmaðurinn kemur til starfauppfullur af hugmyndum sem smita út frá sér og oft er það upphafið á farsælum Leikur að læra ferli skóla.

Lengd: 3,5 klst.

Verð: 13.500.-

 

Stuðningur í vinnu með börnum!

Leikur að læra býður upp á stuðning í vinnu með börnum. Starfsmaður Leikur að læra kemur í skólann, aðstoðar kennara við að útfæra bókleg námsmarkmið í leik og hreyfingu með nemendum. Markmiði að kennarinn geti haldið vinnunni áfram að stuðningi loknum. Mælt er með því að ef nemendur sem þurfa á sérkennslu að halda séu inni í bekknum með sérkennara til að sjá alla þá möguleika sem bjóðast með samþættingu sérkennslu í leik inni í bekk. Stuðninginn er hægt að nýta sér með ólíkum hópum og bekkjum.

Verð:  8 x 60 mín,  120.000.-

Umsjón persónuverndarvalkosta

Afar Nauð

Vafrakökur eru nauðsynlegar til að vefsetrið starfi eðlilega.

-

Synleg Frammistöðu

Vafrakökurnar eru notaðar til að fylgjast með notendasamskiptum og skynja þegar hugsanleg vandkvæði koma upp. Þær hjálpa okkur að bæta þjónustu okkar með því að láta í té greiningargögn um hvernig notendur nota þetta vefsetur.

_ga, _gali, _gat, _gid

Markaðssetning

Notaðu vafrakökur til að nýta þér markaðssetningarreynslu þína til hins ýtrasta og lesa veraldarvefinn. Allar fyrirætlanir eru að mestu leyti viðeigandi fyrir hvern einstakling og eru jafnframt viðeigandi valkostir fyrir hvern ritstjóra vefseturs og aðra.

_