Leggja mynd á réttan stað á stafadúk – ÞRAUTABRAUT
Námsmarkmið
Nemendur æfi sig í að greina fremsta hljóð í orði.
Áhöld
Myndir af orðum sem verið er að æfa. (Lykilorðum)
Framkvæmd
Myndir af lykilorðum eru lagðar fyrir framan þraut. Nemandi dregur mynd finnur fremsta hljóð í orði myndarinnar og ferðast með hann yfir þrautina og leggur hana á réttan staf á stafadúk hinum megin við þrautina miðað við fremsta hljóð í orði myndarinnar.
Afbrigði
Þegar nemendur leggja myndina á dúkinn eiga þeir að móta/skrifa stafinn sem þeir leggja myndina á með puttanum á dúkinn.