Stafir í miðjum hring, stafir og hljóð

Með september 24, 2018
Námsmarkmið

Nemendur æfa sig í lykilstöfum og hljóðunum sem þeir segja.

Áhöld

Stafir

Framkvæmd

Setja hrúgu af þeim lykilstöfum sem verið er að vinna með í miðjuna. Kennarinn segir hljóð á lykilstaf sem verið er að æfa. Kennarinn segir hvaða nemendur megi að fara inn í hringinn og ná í stafina sem passa við hljóðið. Kennarinn tilgreinir jafnvel ákveðinn ferðamáta sem nemendur eiga að nota til að ná í stafinn.

Afbrigði

Nemendur sem náðu í stafinn sýna hinum og allir æfa sig að forma hann með því að skrifa stafinn út í loftið, á lærið á sér eða annan líkamshluta. Kennarinn leiðir hreyfinguna.

Hver nemandi er með skrifspjald og penna og á að skrifa stafinn sem kennarinn er að æfa.

Myndir