Stafir í miðjum hring, fremsta hljóð í orði

Með september 24, 2018
Námsmarkmið

Nemendur æfa sig í lykilstöfum, hljóðunum sem þeir segja og að hlusta eftir fremsta hljóði í orði.

Áhöld

Stafir

Framkvæmd

Setja hrúgu af þeim lykilstöfum sem verið er að vinna með í miðjuna.  Kennarinn segir orð sem byrjar á lykilhljóði sem verið er að æfa. Nemendur hlusta eftir fremsta hljóði í orðinu.  Kennarinn segir hvaða nemendur megi að fara inn í hringinn og ná í stafinn sem passar við fremsta hljóðið í orðinu. Kennarinn tilgreinir jafnvel ákveðinn ferðamáta sem nemendur eiga að nota til að ná í stafinn.

Afbrigði

Nemendur sem náðu í stafinn sýna hinum og allir æfa sig að forma hann með því að skrifa stafinn út í loftið, á lærið á sér eða annan líkamshluta. Kennarinn leiðir hreyfinguna.

Hver nemandi er með skrifspjald og penna og á að skrifa stafinn sem kennarinn er að æfa.

Myndir