Stafadúkur, fremsta hljóð í orði

Með september 24, 2018
Námsmarkmið

Nemendur æfa sig í að hlusta eftir fremsta hljóði í orði.

Áhöld

Stafadúkur.

Framkvæmd

Kennarinn setur stafadúk í miðjuna og segir orð sem byrja á þeim hljóðum sem verið er að æfa. Kennarinn segir hvaða nemendur megi fara inn á stafadúkinn og á stafinn sem passar við hljóðið fremsta hljóðið í orðinu.  Kennarinn tilgreinir jafnvel ákveðinn ferðamáta sem nemendur eiga að nota til að koma sér á dúkinn.

Nemendurnir sem fara inn í miðjuna eiga að forma stafinn með puttanum á dúkinn og hinir sem sitja að forma hann með því að skrifa stafinn út í loftið, á lærið á sér eða skrifspjald.  Kennarinn leiðir hreyfinguna.

Myndir