Para saman, mynd við staf eða orð
Námsmarkmið
Tengja saman hljóð, hljóðtenging og fremsta hljóð í orði.
Áhöld
Pönnukökur eða keilur. Bingóspjöld með stöfum eða orðum og mynd sbr. www.leikuradlaera.is. Kennari klippir út bæði spjöldin þannig að við séum komin með miða sem hægt er að para saman. Annaðhvort mynd og stafur (hljóð) og þá erum við að þjálfa fremsta hljóð í orði (hljóðgreiningu) eða mynd og orð og þá er verið að þjálfa hljóðatengingu (lestur).
Undirbúningur
Pönnukökum eða keilum er dreift um svæðið og undir þær eru settir miðar með mynd á. Kennarinn heldur eftir miðum sem eru annaðhvort með staf eða orði.
Framkvæmd
Nemendur koma í röð fyrir framan kennarann og eitt af öðru draga þau miða með staf eða orði hjá kennaranum. Þeir eiga að nota ákveðinn ferðamáta og ferðast um svæðið, kíkja undir pönnukökurnar eða keilurnar og finna miða með mynd sem passa við stafninn eða orðið sem þeir drógu hjá kennaranum. Þegar nemendur finna par þá koma þeir aftur til kennarans og draga annað spjald.
Athugið: Þar sem þetta er einstaklingsmiðað verkefni þá getur verið að einn nemandi safni 10 pörum á meðan annar safnar 2 pörum og það er allt í lagi því að við erum öll ólík.
Það sem gerist eftir það er:
a) Nemendur passa pörin sín, leggja þau frá sér og þegar búið er að finna öll pörin þá vinnur kennarinn með pörin. T.d. biður nemendur að taka stafina og raða í stafrófsröð, athuga hvort að aðrir nemendur séu með mynd sem passi við staf hjá öðrum nemanda o.s.frv.
b) Þegar búið er að para allt saman þá er leikurinn búinn.
Skriflegt verkefni sem á við verkefnið.
Ef kennari velur leið a) getur hann látið nemendur fá skrifspjald og töflutúss og þeir skrifa stafina eða orðin sem eru á miðunum.