Para saman, samsett orð
Námsmarkmið
Æfa samsett orð með orðum eða myndum.
Áhöld
Pönnukökur eða keilur. Bingóspjöld með samsettum orðu sbr.www.leikuradlaera.is . Kennari klippir út bæði spjöldin þannig að við séum komin með miða sem hægt er að para saman t.d. skóli + taska = skólataska.
[ Samsett orð, myndir ] [ Samsett orð, stafir ]Undirbúningur
Pönnukökum eða keilum er dreift um svæðið og undir þær eru settir miðar sem passa við miðana sem kennarinn heldur á.
Framkvæmd
Nemendur koma í röð fyrir framan kennarann og eitt af öðru draga þau miða hjá kennaranum. Þeir eiga að nota ákveðinn ferðamáta og ferðast um svæðið, kíkja undir pönnukökurnar eða keilurnar og finna miða sem passar við þann sem þeir drógu hjá kennaranum. Til dæmis ef nemandi dregur miða með mynd eða orðinu skóli þá er verið að leita að miða með mynd eða orðinu taska. Þegar nemendur finna par þá koma þeir aftur til kennarans og draga annan miða.
Athugið: Þar sem þetta er einstaklingsmiðað verkefni þá getur verið að einn nemandi safni 10 pörum á meðan annar safnar 2 pörum og það er allt í lagi því að við erum öll ólík. Það sem gerist eftir það er:
a) Nemendur passa pörin sín, leggja þau frá sér og þegar búið er að finna öll pörin þá vinnur kennarinn með pörin. Til dæmis að finna pör sem hugsanlega gætu passað öðruvísi saman t.d. skóli + borð = skólaborð og borð + stofa = borðstofa.
b) Þegar búið er að para allt saman þá er leikurinn búinn.
Skriflegt verkefni sem á við verkefnið.
Ef kennari velur leið a) er upplagt að láta nemendur fá skrifspjald og töflutúss, raða miðunum með orðunum fyrir framan sig og skrifa síðan samsetningarnar á spjaldið.