Skrifa einföld orð á bakið á hvort öðru
Námsmarkmið
Nemendur æfi sig í að tengja saman hljóð og mynd orð.
Framkvæmd
Tveir nemendur eru saman, annar situr fyrir framan hinn og snýr bakinu í hann. Sá sem er fyrir framan er með lokuð augun. Kennarinn lyftir upp spjaldi með því orði (lykilorði) sem verið er að æfa. „Skrifarinn“ skrifar orðið á bakið á þeim sem er fyrir framan. Sá sem er fyrir framan finnur út úr því hvað skrifað er á bakið á honum. Áður en nemendur skipta um stað og endurtaka leikinn æfa nemendur og kennarar saman hljóðið.
Athugið
Kennarinn getur aðstoðað nemendur við að hljóða sig í gegnum orðin.