Spilaleikur, skrifum orð, týnda hljóðið.

Með september 20, 2018
Námsmarkmið

Tengja saman hljóð, hljóðtenging og hljóðgreining.

Áhöld

Leikhringir, orðaspjöld, skrifspjöld, töflutússar og stafir.

Undirbúningur

Stórum leikhringjum sem notaðir eru sem vinnusvæði barna er dreift um svæðið annað hvort i hring eða tvær línur. Einn nemandi fer í hvern leikhring. Stafir eru settir í hring eða fötu í miðjuna, jafn langt frá vinnusvæðum allra nemenda.

Framkvæmd

Kennarinn ætlar að æfa nemendur í að greina hvaða hljóð vantar í S_ L.

Kennarinn sýnir nemendum svona spjald S_ L og segir við nemendur: „ Nú ætlið þið að ná í stafinn sem vantar í orðið sól.” Nemendur fara og ná í Ó.

a) Nemendur skrifa orðið SÓL

b) Nemendur fara og ná í S og L og skrifa svo SÓL á skrifspjaldið.

Myndir