Stafadúkur, þekkja stafi
Námsmarkmið
Nemendur læri að þekkja lykilstafinn og hljóðið sem hann segir.
Áhöld
Stafadúkur og stafir eða skrifspjald og töflutúss.
Framkvæmd
Kennarinn setur stafadúk í miðjuna og segir hljóð á lykilstaf sem verið er að æfa. Kennarinn segir hvaða nemendur megi fara inn á stafadúkinn og á stafinn sem passar við hljóðið. Kennarinn tilgreinir jafnvel ákveðinn ferðamáta sem nemendur eiga að nota til að koma sér á dúkinn.
Nemendurnir sem fara inn í miðjuna eiga að forma stafinn með puttanum á dúkinn og hinir sem sitja að forma hann með því að skrifa stafinn út í loftið, á lærið á sér eða skrifspjald. Kennarinn leiðir hreyfinguna.