Spilaleikur, bingó með hljóð og mynd

Með september 20, 2018
Námsmarkmið

Tengja saman staf við mynd sem passar við fremsta hljóð í orði myndarinnar. Dæmi E og mynd af epli.

Áhöld

Leikhringir og bingóspjöld með stöfum og myndum sem passa saman sbr. spjöld á www.leikuradlaera.is

Undirbúningur

Stórum leikhringjum sem notaðir eru sem vinnusvæði barna er dreift um svæðið annað hvort i hring eða tvær línur. Einn nemandi vinnur í hverjum hring. Miðar með stöfum eru settir í leikhring í miðjuna, jafn langt frá vinnusvæðum allra nemenda. Bingóspjöld með myndum sem passa við stafina eru lögð i leikhringina hjá nemendum. Hver nemandi með eitt spjald.

Framkvæmd

Nemendur nota ákveðna ferðamáta til að ná í miðana með stöfunum í miðjuna. Einn miða í einu. Nota sama ferðamáta og fara með hann til baka og prófa hvort að hann passi við mynd á bingóspjaldinu í leikhringnum. Ef stafurinn passar við mynd á bingóspjaldinu fer nemandinn tómhentur til baka og nær í nýjan miða með nýjum staf. Ef stafurinn passar ekki við neina mynd þá fer nemandinn með stafinn til baka, skilar honum og nær í nýjan staf.

Afbrigði

Þegar allir nemendur hafa fundið stafi sem passa á allar myndirnar á bingóspjaldinu þá skila þeir stöfunum aftur í miðjuna. Skilja bingóspjaldið eftir og færa sig á næsta vinnusvæði sem er með nýju bingóspjaldi með öðrum myndum.

Skriflegt verkefni sem á við verkefnið.

Nemendur skrifa stafina sem verið er að æfa. Ef spjöldin eru plöstuð þá er hægt að láta nemendur skrifa ofan í stafina með töflutússi. Einnig er hægt að láta þau fá skrifspjöld til að skrifa stafina á.

Myndir